mánudagur, október 11, 2004

Kominn er vetur og senn koma jól

Já þá er bara kominn skítakuldi í baunalandi og ekki seinna vænna að pannta sér far til klakans um jólin sem ég afrekaði í gær. 'I dag fékk ég svo email um eitthvað tilboð hjá icelandexpress. rats! aðeins of seint. það er best að vera ekkert að kíkka nánar á það til að svekkja sig. 'Eg fékk miðann á 21.510 sem er alveg ágætt verð held ég bara. Og það með Icelandair. 21.des - 4.jan. Þá er bara að fara að kaupa jólagjafir enda ekki ráð nema í tíma sé tekið.

Kominn er vetur og senn koma jól
Kuldinn hann hvílir sem mara
mig langar helst eitthvert í sumar og sól
maður ætti að skella sér bara.


Er det ikke smukt. :)

1 Comments:

At 2:30 f.h., Blogger Lifur said...

Nú kominn er vetur og kemur senn Jón
á klakann hann vill ennþá fara
Vonandi fer hann ei vestur á Fjón
Þá villist hann ekki til Skara

Ég skulda þér alltaf seinnipart síðan um daginn. Borga hann vonandi fljótlega.

 

Skrifa ummæli

<< Home