laugardagur, febrúar 12, 2005

I'm a sick bastard!

Nú voru sjálfsagt einhverjir farnir að hugsa: "jæja, það er mikið að hann viðurkennir það"...en það var nú alls ekki þannig meint og skammist ykkar fyrir að hugsa svona! ;) Nei þannig er málið að ég er búinn að liggja í flensu nú í nokkra daga og er þetta þriðja veikindatörnin hjá mér á einum mánuði!!! Ekki birjar árið vel hjá mér. En...fall er fararheill!:).

Til að bæta gráu ofan á svart, eða réttara sagt hvítu ofan á grátt þá var að birja að snjóa og á víst eftir snjóa annsi mikið í dag. Svo maður heldur sig sennilega bara innandyra með heitt kakó fyrir framan arininn (þ.e.a.s. ef ég væri með arinn).

Svo fórum við Steinar á lögreglustöðina í dag til að bera vitni. Við slysuðumst á þorrablótum síðustu helgi eftir smá Hekkenfeld "auka" myndbandsupptökur. Þar var náttúrulega mikið drukkið með tilheyrandi misþyrmingu á innanstokksmunum og slagsmálum. Við Steinar urðum vitni að líkamsárás og þurftum að gefa skýslu og mættum svo í yfirheirslu hjá löggunni í gær. Við þurfum að öllum líkindum að mæta í réttinn eftir nokkrar vikur. Sem sagt: "Stanno tutti bene".

arivaderchi

1 Comments:

At 12:10 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já ég var búin að frétta af einhverjum misþyrmingum á þessu blessaða þorrablóti..ekki að sökum að spyrja þegar íslensku víkingarnir mæta á svæðið í ham..þá er fjandinn laus..gott hjá ykkur að bera vitni..ekki allir sem hafa kjark í sér og þor til þess alltaf því miður..ég frétti líka að þorrablótið hafi heppnast vel að öðru leiti og kæsta gómsætið og súrsaða runnið ljúflega niður hjá all flestum Kveðja Helga Stína

 

Skrifa ummæli

<< Home