þriðjudagur, mars 08, 2005

Að gefnu tilefni

Það er ýmislegt sem maður dúttlar sér við þegar manni leiðist á vaktinni.!!

Mig er nú farið að gruna
að á landinu frostsins og funa
Hafi'ei orðið svo hlýtt
né veðurfar blítt
í mars, síðan elstu menn muna

Í Danmörku hinsvegar erða
að sífellt er kaldara að verða
ef bætir í frost
sé ei annan úrkost
en flytja til Íslands...ég sverða!

EBB

1 Comments:

At 2:35 f.h., Blogger Nonni said...

Fór allt í einu að spá: Kann fólk ennþá að lesa limrur? Eða er þetta deyjandi kveðskaparform?

 

Skrifa ummæli

<< Home