föstudagur, febrúar 18, 2005

Do remi fas ola tito


Það er bara voða lítið að gerast í mínu lífi í augnablikinu. I'm so bored!Dratthalaðist reyndar á kóræfingu á miðvikudaginn og var það afrek vikunnar. Það á að fara á kóramót til Gautaborgar aðra helgina í Mars og verður það sjálfsagt mikið húllumhæ eins og venjulega. Þar verða íslenskir kórar frá Kaupmannahöfn, Lundi, Gautaborg, Osló, London og Luxemborg.

Svo vil ég nota tækifærið hér og bjóða Sverrir bróðir sérstaklega velkominn á bloggið eða "böggið" eins og hann kallar það. Velkominn! :)

2 Comments:

At 11:13 e.h., Blogger Lifur said...

Mislas þetta eitt augnablik. Hélt að þú værir að fara á kóramót á Mars. Vissi að hefðir gaman að því að ferðast en...

 
At 12:30 f.h., Blogger Nonni said...

Já ætli maður eigi ekki eftir að skreppa til Mars einhverntíman...en kannski ekki á kóramót. ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home