föstudagur, mars 18, 2005

Dregur til tíðinda!

Jæja þá er ekki aftur snúið...búinn að segja upp vinnunni á Palace og á leiðinni til Íslands í sumar að vinna á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Ég birja þar 1.Júní og verð 4 mánuði. Eftir það er stefnan sett á S-Ameríku enhverntíman í Oktober.

"Stór"hljómsveitin Hekkenfeld verður með Útgáfutónleika og tilheirandi Laugardaginn 14.Mai, þannig að fyrir þá sem eru að planleggja að skreppa til Köben á vormánuðum, þá er helgin 14-15 Mai alveg tilvalin til þess. :) Nánar auglýst síðar!

Annars er frekar rólegt þessa hjá mér helgi nema að ég er að fara að sjá Emiliönu Torrini á Laugardagskvöldið. Það verður gaman. :)

p.s. Munið að kíkka á nýju myndirnar frá kóramótinu! Myndirnar eru úr hinu óborganlega leikriti "Íslendingur á knæpu í Kaupmannahöfn".

1 Comments:

At 7:42 f.h., Blogger Þórður said...

Gaman að heyra þetta, sérstaklega þar sem ég verð sjálfssagt með annan fótinn í mývatnssveit í sumar eins og undanfarin sumur ;-)

 

Skrifa ummæli

<< Home